Hólmsteinn Þór Valdimarsson

www.123.is/holmsteinn

fös. 8.jún.Hólmsteinn Þór Valdimarsson

Ég vaknaði í morgun klukkan 6:00, fór á badminton æfingu kl. 6:30, fór að vinna 7:30-15:00, fór upp akrafjall með Unu kl. 17:00, komum niður 18:40, fór á badminton æfingu kl. 20:00-22:00, og er svo núna að snúa íbúðinni á hvolf og þvo allt..

létt ofvirkur dagur..

fim. 17.maí.Hólmsteinn Þór Valdimarsson

sótti skápinn í dag, ég fékk 8 fyrir hann og 7 fyrir bóklega prófið sem er bara nokkuð gott.  einhver strákur sem tók prófið í Breiðholtinu fékk 10 fyrir skápinn, en það var víst hvergi hægt að finna millimeters skekkju á honum.  ég er nokkuð ánægður með stykkið mitt, en ég spurði nú ekki út í hvað það var sem kostaði mig tíuna.

þri. 20.feb.Hólmsteinn Þór Valdimarsson

hæhæ..

ég á afmæli í dagBrosandi.. bara svona koma því á framfæri.. tuttugu og eins ársÓákveðinn.. en fjórtán ára í anda..

mótinu sem ég og orri ætluðum á var aflýst vegna lélegrar þátttöku, en hann gat reddað okkur inn á annað svipað mót í köben, Bröndby Strand.  En við ætluðum að fljúga frá kaupmannahöfn til álaborgar en fáum það flug ekki endurgreitt, svekkjandi.. 

een já, það var mót um helgina í TBR, ég og dísa unnum riðilinn okkar, þökk sé knúsinu sem við tókum fyrir fyrsta leikinn, en svo í undanúrslitunum gleymdum við að knúsast og töpuðum,, en svona hápunktur mótsins var þegar brjálaði klikkhausinn ég, fékk rautt spjald..  Ég missti mig aðeins á móti einhverjum norðmanni sem var örugglega orðinn skíthræddur., en svo fór ég eftir leikinn til dómarans og bað hann afsökunar á því hvernig ég hegðaði mér og hann tók bara vel í það.

ÞIÐ SEM ERUÐ EKKI BÚIN AÐ ÓSKA MÉR TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN.. ÞIÐ HAFIÐ HÁLFTÍMA!!!!!!

bæjó

fös. 8.des. nr. 2Hólmsteinn Þór Valdimarsson

elsku dúllurnar mínar, eruði ekki til í að fara að læra muninn á "einhver" og "eitthvað".. mjög oft þegar ég er að skoða blogg hjá einhverju (takiði eftir EINhverju) fólki rekst ég á eitthvað svona; "við fórum og chilluðum með eitthverju fólki", "við fórum einhvað út í sveit".  fátt fer jafnmikið í taugarnar á mér eins og svona vitleysur, ég sé þetta nú samt aðallega hjá einhverjum krökkum sem eru að blogga, en samt líka stundum hjá 17, 18, eða 19 ára fólki.  Þið sem eruð í grunnskóla, spurjiði nú íslenskukennarann ykkar á mánudaginn út í þetta svo að þið getið hætt að pirra mig svona!!

kveðja, einn pínu pirraður, það eru próf skiljiði!!

smá pæling;;hvort ferð þú í gegnum drauginn, eða draugurinn í gegnum þig??

Fimmtudagur 26. októberHólmsteinn Þór Valdimarsson

Laugardagurinn 11. mars 2006 er dagur sem gleymist seint.  Þessa helgina var badmintonmót í TBR sem eg fór á og var restin af fjölskyldunni eftir heima, pabbi að vinna og amma var hjá mömmu.  Þegar ég er á mótum tek ég oftast símann með inn í sal og hef hann á silent í töskunni, en þetta skiptið skildi ég hann eftir inni í klefa, eða hvort ég gleymdi honum, man ekki alveg. Svo held ég að það hafi verið um fimm leitið sem ég fór í sturtu og ætlaði bara að halda heim á leið.  Ég var búinn í sturtu og var að labba útúr klefanum þegar ég sá að ég hafði fengið tvö SMS frá pabba, fyrra kl. 14:56 “Hæ vinur. Mamma er á leið suður með mikinn hita.  Hringdu sem fyrst.”  Og seinna kl. 15:54 “ekki koma heim.  Hringdu.  Mamma er komin suður.”  Ég kippti mér nú ekkert svakalega upp við þetta, bjóst bara við að þetta væri eitt af þessum skiptum.  Það var farið með hana upp á borgarspítala, öll fjölskyldan var komin þangað, en ég man ekki alveg hver keyrði mig þangað.  Allir voru að bíða inní aðstandendaherberginu og enginn vissi í raun og veru neitt.  Við biðum þarna nokkuð lengi og held ég að ég hafi sofnað aðeins á meðan.  Svo loksins kom hjúkrunarfræðingur inn til okkar og sagði að þau væru búin að vera að berjast við að ná blóðþrýstningnum upp en það hafði ekkert gengið nógu vel, amma spurði hvort hitinn hafi eitthvað lækkað en hún sagði að þau hafi ekki haft tíma til að mæla hann, við máttum núna fara inná stofuna til hennar og sjá hana, en þegar við vorum að labba á ganginum að stofunni sagði hjúkkan að hún væri í raun og veru bara að fjara út.  Þá fyrst áttaði ég mig á því hversu alvarlegt þetta væri, ég reiknaði með að hún mundi bara vera nokkra daga inná sjúkrahúsi að jafna sig eins og svo oft áður.  Við komum inn á stofuna og hún var meðvitundarlaus og búin að vera það allan daginn, augun voru hálfopin og einhver slanga lá uppúr munninum á henni auk þess sem hún var eiginlega öll vafin slöngum.  Við vorum inni hjá henni stutta stund en svo þurftu læknarnir að halda áfram að reyna.  Þegar við komum fram brotnaði ég alveg niður og spurði pabba hvort að ég mætti fara heim af því að mig langaði ekkert að vera hérna, ég fór útaf gjörgæslunni og settist frammi, sigga kom fram og bað mig um að fara ekki, ég vissi ekkert hvað mig langaði að gera, helgi bróðir pabba fór með mig út á rúntinn í smá stund og róaði það mig svolítið, við keyrðum um í svona tuttugu mínútur en þá hringdi pabbi og bað mig um að koma upp á spítala, “þetta er bara búið” sagði hann.. ég hélt að hann væri að meina að þetta væri að verða búið, en við fórum upp á spítala og það fyrsta sem við heyrðum var dánartíminn.  Það var mjög skrítið að sitja þarna öll nýbúin að frétta þetta, sjúkrahúspresturinn kom til okkar og fékk hann okkur til að tala um mömmu, hvernig manneskja hún var og svoleiðis, það var mjög huggandi að vera með hann þarna.  Það leið mjög langur tími þangað til að við máttum fara inn til hennar aftur, okkur langaði mjög að fara inn til hennar og þegar við loksins gátum það var það mjög erfitt.  Presturinn kom með okkur inn til að við gætum kvatt hana.  Það var búið að búa mjög fallega um hana og einnig var biblía á borðinu við hliðina á rúminu, ilurinn var farinn úr höndunum hennar og augun voru ennþá hálfopin, við stóðum öll yfir henni héldumst í hendur og fórum með faðir vorið, þá var ómögulegt að halda aftur af tárum.  Við vorum inni í dágóða stund og töluðum líka svolítið við hana.  Þetta var allt saman eitthvað svo óraunverulegt, og maður bjóst einhvernveginn aldrei við því að þurfa að standa í þessum sporum.  Á leiðinni heim leið mér soldið skringilega, þetta var svo fjarlægt að manni leið hálfpartinn eins við værum bara á leiðinni heim úr heimsókn hjá henni.  daginn áður var ég að strengja spaða fyrir mótið og sat hún þá í sófanum og var að horfa á mig, það var eiginlega það síðasta sem ég man eftir að hafa gert með henni, hún var sofandi um morguninn þegar ég fór á mótið þannig að ég náði ekki að kveðja hana þá en pabbi kvaddi hana áður en hann fór í vinnuna og þá var hún bara mjög hress.  eftir rannsókn kom í ljós að dánarorsök var sýking í blóði.  Næstu dagar einkenndust bara af undirbúningi fyrir kistulagningu og jarðaför, og það er á svona tímum sem maður tekur eftir því hvað það er gott að eiga góða vini og ættingja.



Þú varst dáð og elskuð og munt alltaf verða :*:*:*:*:*

Barnaklám!!!!Hólmsteinn Þór Valdimarsson

Ég var að fá svona soldið skrítnar fréttir fyrir stuttu, einn kennarinn minn úr grunnskólanum sem ég var í var handtekinn og rekinn úr skólanum fyrir vörslu barnakláms, mér fannst þessi kennari alltaf soldið furðulegur og spes á sinn hátt, en þetta kom mér að sjálfsögðu á óvart en samt ekki eins mikið og reikna mætti með.  ég var oft að hugsa út í það þegar ég var í grunnskóla, að þessi kennari og reyndar einn annar, gætu verið svona gaurar, en ég bjóst nú samt ekki við því að það væri satt.. svo er ég líka að velta fyrir mér hversu lengi hann er búinn að vera að skoða barnaklám, var hann kannski að því þegar hann var að kenna mér?? Þetta er náttúrulega tilvalinn vinnustaður fyrir svona gaura, að vera allann daginn í kringum krakka á öllum aldri,, en kannski var það einmitt það sem gerði hann svona, að vera að umgangast krakka allann daginn leiddi kannski til þess að hann fór að downloada svona stöffi, maður veit aldrei..
hann flutti strax til reykjavíkur eftir þetta enda getur hann væntanlega ekki látið sjá sig eftir þetta þar sem allir þekkja hann hérna.  Hvað á ég svo að gera ef ég hitti hann einhvern tímann úti á götu í bænum, á ég að heilsa honum eða hunsa hann, eða forðar hann sér kannski í skjól um leið og hann sér mig, ég held að það myndi sennilega vera raunin.. það væri allavega soldið kjánalegt að fara bara allt í einu að spjalla um gamla tíma eins og ekkert hefði í skorist. 
Svo hugsa ég nú líka um það hvort eitthvað svona  fólk vinni á leikskólum, þar sem börnin eru varnarlaus og einhverrir perralingar færu bara að káfa á börnunum og þau fatta ekkert að þetta er bannað.. það eru náttúrulega mest kvenfólk sem vinnur á leikskólum og örugglega mest karlar sem eru fyrir svona barnaklám en það geta nú samt örugglega verið dæmi.
þetta er soldið skrítið að fólk sem maður hefur þekkt lengi virðist svo bara vera allt öðruvísi en búist var við, svona lagað kemur auðvitað ekkert fram í daglegu lífi í kringum annað fólk, þannig að ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að haga mér í þessu, á ég að vorkenna manninum eitthvað eða bara hata hann fyrir að vera svona ógeðslegur??

Þið sem vitið hvaða maður þetta er, ég vil endilega að þið commentið og segjið hvað ykkur finnst um þetta, hvaða álit hafiði á honum eftir þetta??

Band CampHólmsteinn Þór Valdimarsson

halló aftur..

ég er búinn að vera þvílíkt latur undanfarið, hef lítið mætt í skólann og ekki nennt að æfa mikið, hlaupa og lyfta og svoleiðis, en svo var ég að byrja aftur í dag hjá honum dínó og það var bara fáránlegt, ég held ég hafi aldrei áður verið svona þreyttur í salnum, ég ældi meira að segja eftir tímann niðri í klefa. 

en nóg um það, örugglega ekki gaman að lesa um ælurnar mínar.. það verður stuð um helgina hjá mér, klikkað djamm öllu heldur, við í lúðrasveitinni ætlum að skreppa upp í heiðaskóla og vera með æfingabúðir, það er sko alltaf stuð hjá þessum lýð enda soldið sérstakur húmor í hópnum eins og kannski þekkist hjá lúðrasveitumUllandi.. svo eftir helgi kem ég hérna með krassandi "band camp" sögur, ef þær verða frásagnarhæfar, það er nú ekkert alltaf svoleiðis skoGlottandi

hljómsveitin fór til spánar í sumar og var það skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í, kannski útaf því að þetta er svona eiginlega eina svona sólarlandaferð sem ég hef farið í og mikið frí og chill í ferðinni. ég kynntist sumum meðlimum hljómsveitarinnar sem ég þekkti lítið og hafði jafnvel aldrei yrt á.. eins og litla frænka, já komst að því daginn sem við fórum út að ég á frænku í lúðrasveitinni, hana kristjönu, en við erum fjórmenningar, sem sagt við áttum sömu langlang afa og ömmu.. þegar hún frétti það varð hún svo ánægð að núna lætur hún mig ekki í friðiHlæjandi neinei hún er alveg róleg sko...

en jæja það styttist í tónlistarkeppnina og er hann siggi rúnar líka kominn í bandið, en hann spilar á tenorsax.. hann getur víst ekki spilað á saxinn sinn vegna þess að hann rústaði honum í ferðinni og fær því lánaðann saxinn hans viddaUllandi

hérna er nýjasta æðið í íslenskum bloggheimi, hún er ung og villt og til í hvað sem er www.blog.central.is/kjutigirl

farinn að sofa

Djamm djammHólmsteinn Þór Valdimarsson

hann ársæll, betur þekktur sem sæli eða surtur, er víst harðákveðinn í að fara á eitthvað svakalegt flakk um helgina, og samkvæmt hans hugmyndum þá verður held ég til skammar að vera edrú nokkurn hluta helgarinnar.  hvort að honum var fúlasta alvara með því sem hann sagði við mig veit ég ekki, en allavega verður þetta stuð ef af því verður. 

á morgun er það held ég selfoss þar sem hann hafði á orði að fara á eitthvað smá****ball, hvort að við gamalmennin fáum inngöngu á slíka skemmtun veit ég ekki, en það má alltaf reyna og ýta soldið á eftir hlutunum.  ég hef nú ekki gert það að vana mínum að fara á böll, er ekki einu sinni í nemendafélaginu, já ég er félagsskítur, veit það alveg, en ef þangað verður farið ætla ég sko ekki að standa fyrir utan takk fyrir. 

svo laugardagurinn.. hann minntist eitthvað á akureyri, jesús, ekki ef sæli keyrir... sáuði greinina með honum í blaðinu, sénsinn að maður fari með svona köllum í nokkurra klukkustundaferð.. en maður getur samið.. á ég ekki bara að keyra honduna?? troðum bara fylgdarliði afturí (það er pláss fyrir svona sirka einn dverg afturí.. lítinn dverg), ferðin lengist kannski um tvo til þrjá tíma ef ég keyri en það er nú bara í góðu lagi.. verðum bara snemma í þvíGlottandi

hvort að hann hafði eitthvað í higgju fyrir sunnudaginn veit ég ekki.  ég kom nú með tillögu um að starta helginni bara í kvöld með smá neyslu, og tók hann jú bara vel í það, sjálfur á hann einhverjar byrgðir af spítti... það verður bara stuðUllandi

áfengi helgarinnar er ég ekki alveg búinn að ákveða, held ég verði að beila á karlmannsbjórnum og fara aðeins meira útí ****bjórinn, já þessar stjörnur merkja það sama og ball stjörnurnar!!
Fyrir ykkur sem eruð svona soldið treg þá ætla ég að gefa ykkur vísbendingu, held samt að heilvita fólk fatti alveg
****sögur
****popp
ég er svo mikill engill að ég skrifa ekki svona orð á bloggið mittSaklaus

PÍKA

svona að lokum þá gæti ég þurft að grípa til ráðstafana hér á síðunni ef hlutir fara ekki að breytast, já ÞÚ lesandi góður skalt hugsa þinn gang áður en þú ferð út af síðunni minniÖskrandi

Íslenska landsliðið.... piffHólmsteinn Þór Valdimarsson

Ég er hérna að horfa á landsleik Svía og Íslendinga og fór svona aðeins að pæla í þessum landsliðum, er virkilega hægt að meta svona hvaða land er best.  bestu leikmenn beggja liða eru að æfa hjá stórkostlega góðum félögum og fá magnaða þjálfun, og líka margir aðrir leikmenn.  ég held að það væri ekki hægt að segja til um hvaða land sé best nema ef allir íslenskir leikmenn æfðu á íslandi með íslenskum þjálfurum, og öll önnur lönd gerðu það sama.  við erum svakalega stolt af honum eiði smára, hann er svakalega góður leikmaður, en af hverju erum við svona stolt, það er ekki eins og íslensk þjálfun hafi gert hann svona góðann.  ef hann væri búinn að æfa og spila á íslandi allann sinn feril þá held ég að það væri ekki séns að hann væri svona góður eins og hann er....

efað ísland vinnur leikinn þá má barcelona og enska deildin vera stolt af strákunum sínum

Með fullri virðingu fyrir leikmönnunum sem æfa á íslandi!!

Prófíll

  • Nafn: Hólmsteinn Þór Valdimarsson
  • Netfang: holmsteinn_vald@hotmail.com
  • Staður: Akranes
  • Heimilisfang: Kirkjubraut 58
  • Símanúmer: 8651157
  • Atvinna: Smiður

Auglýsing

Myndir

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur